Leita
English
Stærsta letur
Miðstærð leturs
Minnsta letur
Hvaleyrarbraut 2
220 Hafnarfjörður
Sími 512 8500
Fax 578 1911
sonar@sonar.is

Sónar flytur að Hvaleyrarbraut 2 og fær nýtt símanúmer 512 8500

06.01.2010

 

Sónar flutti sig um set yfir Hvaleyrarbrautina núnua yfir hátíðarnar og erum við að koma okkur fyrir þar núna.

það var orðið ansi þröngt um okkur á gamla staðnum, enda hefur okkur fjölgað úr 2 í fimm síðan við fluttum þar inn.

Við bjóðum alla velkomna í heimsókn til okkar að Hvaleyrarbraut 2 og vonumst til að sjá sem flesta af okkar viðskiptavinum á næstu vikum og mánuðum.

Samhliða flutningunum munum við skipta um símanúmer og nýja númerið verður 512 8500. Við þessa breytingu fá allir Starfsmenn okkar beint símanúmer sem finna má hér

 

 

Sónar afgreiðir tækjapakka í stærsta plastbát sem byggður hefur verið á íslandi.

10.12.2009

 

Nýlega var afhentur frá bátaverksmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði 15 metra langur yfirbyggður plastbátur sem hlotið hefur nafnið Ásta B. Báturinn er smíðaður fyrir útgerðarfélagið Eskoy a/s í Tromsö í Noregi, en það er í eigu 3 íslendinga.

Þeir eru bræðurnir Hrafn og Helgi Sigvaldasynir frá Grindavík og Bjarni Sigurðsson sem er Húsvíkingur að uppruna.

Báturinn er hinn glæsilegasti í alla staði og búinn fullkomnasta tækjabúnaði sem völ er á, og er tækjabúnaður í brú þar ekki undaskilinn.

Sónar sá um að afgreiða öll tæki í bátinn em að mestu eru frá JRC, auk þess að setja hann upp og ganga frá honum þannig að hann megi koma eigendum að sem bestum notum.

Sónar óskar Eskoyarmönnum til hamingju með nýtt og glæsilegt skip og óskar þeim velfarnaðar við útgerð þess.

 

Nánari lýsing á tækjapakkanum í Ástu B

 

 

 

 

 

AIS tæknin leysir sjálfvirku tilkynningaskylduna (STK) af hólmi

 

 

Samgönguráðuneytið hefur sett reglugerð nr. 565/2009 um breytingu á reglugerð nr. 672/2006 um vaktstöð siglinga og eftirlit með umferð skipa. Með gildistöku reglugerðarinnar geta skip tilkynnt staðsetningu sína til vaktstöðvar siglinga með sjálfvirku auðkennikerfi skipa (AIS - Automatic Identification System) með sama hætti og með svokölluðum STK tækjum.

Gert er ráð fyrir að eftir 1. janúar 2011 muni AIS kerfið taka við af STK kerfi í ferilvöktun skipa. Evrópureglur ná til skipa yfir 15 metrum að lengd og notast þau við AIS-A tæki. Skipum undir 15 metrum verður heimilt að nota AIS-B tæki sem eru einfaldari að gerð og ódýrari.

 

Sjá alla greinina á vef siglingamálastofnunar

 

Við hjá Sónar bjóðum að sjálfsögðu bæði Class A og Class B AIS tæki auk þess að bjóða DSC talstöðvar frá JRC, Sailor og Raymarine.

 

 

Sónar tekur við Raymarine umboðinu

24.05.2009

 

Sónar samdi í byrjun Apríl við Raymarine um að taka við sölu og þjónustu á þeirra búnaði á Íslandi.

 

Raymarine er einn stærsti framleiðandi heims á siglingatækjum í minni og meðalstóra báta. Einnig framleiða þeir tæki sem henta fyrir stærri skip og byggja á nettengingu allra eininga kerfisins og tryggir það mikinn sveigjanleika í lausnum.

Raymarine framleiðir líklega eina heildstæðustu línu tækja fyrir báta í heiminum í dag sem gerir að verkum að við getum fækkað birgjum með þessu og tryggt enn betri þjónustu við okkar viðskiptavini en fram til þessa.

 

Við bjóðum núverandi Raymarine notendur velkomna í þjónustu til okkar og hvetjum bátaeigendur í tækjahugleiðingum til aða hafa samband eða lít avið og skoða hvað Raymarine getur boði þeim

 

 

WASSP fjölgeislamælir í Huginn VE

22.05.2009

 

Sónar vinnur nú að endurnýjun búnaðar í brú Hugins VE-55 og er verið að uppfæra fyrirkomulagið í brúnni til nýjustu tækni og flatskjávæða hana.

 

Meðal þeirra tækja sem verða sett í skipið er WASSP mælirinn sem hefur sannað gildi sitt við hinar ýmsu veiðar hér við land undanfarin 2 ár.

 

Þetta er fyrsta stóra uppsjávarveiðiskipið semtekur mælinn og verður virkilega spennandi að sjá hvernig það nýtist við þær veiðar. Frá upphafi hefur verið sjá botninn í þrívídd í mælinum og uppfæra þrívíddarupplýsingar í siglingatölvum frá Sodena og Olex. Nú hefur verið bætt við þeim möguleika að sjá torfur af fiski uppi í sjó á mælinum í þrívídd og einnig að sýna þær á Sodena og Olex siglingatölvunum.

 

Við teljum að mælirinn eigi eftir að nýtast þeim Huginsmönnum vel við allar veiðar og ekki síst makrilveiðar þar sem tíðnin, 160 khz er einkar vel fallin til að sjá makrílinn.

 

Til viðbótar mælinum munum við setja nýjan radar og GPS kompás frá JRC um borð í skipið auk uppfærslu á straummæli í nýjustu útgáfu.

 

 

Sónar hefur innflutning og þjónustu á Sailor fjarskiptabúnaði

 

Um miðjan febrúar hóf Sónar sölu á fjarskiptabúnaði frá hinum heimsþekkta danska framleiðanda  Sailor. Vörurnar frá Sailor þarf vart að kynna fyrir íslenskum sjómönnum en þær hafa verið á markaði hérlendis í áratugi og reynst frábærlega.

Við hjá Sónar fögnum því að fá nú tækifæri til þess að bjóða þessar vörur og ætlum okkur að sinna þjónustu við Sailor notendur af sama krafti og öryggi og hefur verið aðalsmerki okkar fram að þessu. Við erum vel í stakk búnir til þess þar sem þjónustustjóri okkar, Einar Ríkharðsson er einn reyndasti Sailor tæknimaður landsins og hefur sótt námskeið hjá Sailor til að fylgjast með því nýjasta á sviði þeirra tækni og viðhalda tækniþekkingu sinni á Sailor búnaði.

Við bjóðum  eigendur og notendur Sailor fjarskiptabúnaðar velkoma í þjónustu til okkar og hlökkum til þess að eiga við þá samstarf á komandi árum.

 

 

Sónar selur tæki í 120 metra togara sem fer á veiðar við Afríku

 

Sónar gekk nýlega frá sölu á tækjum í stóran úthafsveiðitogara sem fer á veiðar við vesturströnd Afríku eftir að breytingum á honum lýkur í sumar. Skipið er í eigu Levert Shipping Company, en meðal þeirra sem koma að útgerðinni og verðandi skipstjóri er Páll Eyjólfsson. Páll er oft kenndur við togarann Heinaste, en það skip var brautryðjandi í þessum síðari tíma Afríkuveiðum íslendinga.

Meðal þeirra tækja sem seld voru í skipið er Kaijo KCS 3220Z lágtíðnisónar, JLN 628 straummælir og JMA 5312MK2 radar frá JRC auk Comnav Admiral sjálfstýringar.

 

 

Sónar tekið vel á Íslensku sjávarútvegssýningunni

 

Mjög góð aðsókn var á bás Sónar á sýningunni sem nú er nýlokið. Básinn var fullur af fólki mestan hluta sýningarinnar og komust færri að en vildu vegna mannmergðar. Mesta athygli vakti þrívíddardýptarmælirinn WASSP sem kemur frá nýja Sjálandi en hann vann einnig til verðlauna sem athyglisverðasta nýjungin sem kynnt var á sýningunni.

Við þökkum öllum sem heimsóttu okkur á sýninguna kærlega fyrir komuna og vonumst til að heyra meira frá þeim í náinni framtíð.

 

Einar og Óskar báðir komnir til starfa hjá Sónar

 

Nú hafa bæði Einar Ríkharðsson og Óskar Aðalbjörnsson hafið störf hjá Sónar. Eins og allir vita sem kynnst hafa þessum mönnum eru þeir miklir fagmenn og vandaðir einstaklingar sem munu styrkja þann öfluga hóp sem stendur á bak við Sónar. 

Sónar hefur það að markmiði að aðstoða sjómenn og útgerðarmenn við að afla fiskjar á sem hagkvæmastan máta og munu Einar og Óskar gegna lykilhlutverki við það.

 

Sónar á sjávarútvegssýningunni

 

Sónar mun taka þátt í sjávarútvegssýningunni sem haldin verður í Kópavogi 2. - 4. Október. Við verðum staðsettir á bás H30 auk þess sem veglegur tækjapakki frá okkur verður í nýjum glæsilegum bát frá Samtak sem verður til sýnis á útisvæði.

Við bjóðum alla velkomna til okkar á básinn þar sem til sýnis verða tæki sem uppfylla þarfir allra íslenskra sjómanna.

 

Sónar tekur við umboði fyrir Seatel á Íslandi

 

Sónar hefur samið við Seatel um sölu og þjónustu á vörum þeirra á Íslandi. Seatel framleiðir hinar þekktu sjónvarpsmóttökukúlur sem eru komnar á stóran hluta íslenska skipaflotans og hafa gert sjómönnum kleift að fylgjast með sjónvarpsútsendingum líkt og aðrir landsmenn.

Við bjóðum Seatel notendur velkomna í viðskipti til okkar og munum gera okkar besta til þess að þjóna þeim eins vel og okkur er unnt.

 

Enn fjölgar í liði Sónar

 

Óskar Aðalbjörnsson hefur ákveðið að bætast í sterkan hóp tæknimanna Sónar og hefja störf þar í Október næstkomandi.

Óskar hefur starfað hjá R. Sigmundsson í fjölda ára og aflað sér mikils trausts þeirra sem kynnst hafa störfum hans. Óskar mun auka verulega styrk tæknideildar Sónar sem líklega verður sú öflugasta á landinu með tilkomu hans.

Við bjóðum Óskar hjartanlega velkominn til starfa.

 

Sónar berst liðsauki.

 

Í lok apríl ákvað Einar Ríkarðsson sem starfar hjá R. Sigmundsson og áður Radíómiðun að ganga til liðs við Sónar. Einar hefur starfað í fjölda ára við siglingatækjaþjónustu og er einn hæfasti rafeindavirki landsins á sínu sviði.

Einar mun hefja störf hjá Sónar í Ágúst og verður mikill fengur að því að fá hann í liðið.

 

Kaijo  umboðið til Sónar.

 

1 febrúar tók Sónar við umboði fyrir Kaijo fiskileitartæki á Íslandi. Kaijo tækin hafa verið á markaðnum í fjölda ára og hafa verið þekkt fyrir mikil gæði og ekki síst fyrir að vera afar sterkbyggð og nánast viðhaldsfrí en það skiptir gríðarlega miklu máli fyrir sónartæki við erfiðar aðstæður eins og við Ísland.

Kaijo hefur lagt mikla vinnu í tækniþróun síðastliðin ár og nýjustu sónartækin frá þeim hafa alla nýjustu tæknilega möguleika og gefa keppinautum sínum ekkert eftir í því efni.

Við hjá Sónar ehf bjóðum núverandi Kaijo notendur velkomna til okkar í þjónustu, og einnig þá sem eru að velta fyrir sér kaupum á sónartækjum eða vönduðum dýptarmælum.

 

Sónar tekur við umboði fyrir Sodena siglingatölvur á Íslandi.

 

Sónar ehf tók nýlega við umboði fyrir siglingatölvur frá franska fyrirtækinu Sodena.

Sodena framleiðir siglingatölvur sem þekktar  eru undir nöfnunum Turbo 2000 og Turbo 3000D. Talsvert er af þessum tækjum í notkun á landinu og bjóðum við notendur þeirra velkomna í þjónustu til okkar í Sónar.

 

 

Nýja þrívíddarmælinum vel tekið af íslenskum sjómönnum.

 

Mynd af El Grillo tekin með þrívíddarmælinum
Frá því að við kynntum mælinn í júní hafa selst 10 tæki þegar þetta er skrifað í byrjun nóvember. Hefur hann þegar verið settur upp í nokkrum þessara skipa og báta og er almenn ánægja með hann hjá notendum.

Mælirinn er afar fljótur að teikna upp kort af botninum og sýnir bæði dýpi og hörku greinilega.

Einnig sýnir hann mjög greinilega hluti á botninum eins og meðfylgjandi mynd af flaki El Grillo í Seyðisfirði sýnir, en Ragnar SF hefur verið gerður út þaðan síðustu vikur.

 

Arnar Ragnarsson skipstjóri á Ragnari segir að mælirinn spari mikinn tíma þegar menn koma inn á ný svæði sem þeir þekkja lítið sem ekkert og geri þeim kleift að fiska með árangri strax á fyrstu dögunum í stað þess að eyða miklum tíma í að kortleggja svæðin.

Hann hefur farið út á allt að 310 metra (170FM) dýpi og segir mælinn vinna fullkomlega þar eins og á grynnra vatni, bæði við að teikna þrívíddarmynd og skrá botnhörku.

 

Meira um þrívíddarmælinn

 

GSM

C-MAP kort MAX-wide Ísland, Færeyjar
MDS- 8 Radar fyrir SEIWA plottera
JLN-628 Straummælir