Maretron DSM 570 5,7″ aflestrarskjár
Maretron DSM570 – 5,7” NMEA 2000® litaskjár
Maretron DSM410 er 4,1” háupplausnar litaskjár sem er mjög bjartur og hannaður fyrir notkun um borð í bátum og skipum . Skjárinn tengist við NMEA 2000® net og birtir mæla-, siglinga- og önnur gögn skipa á skýran og sveigjanlegan hátt.
Notandi getur valið á milli tölugilda, mælaborða, súlurita eða línurita og stillt skjámyndir eftir eigin þörfum. Þetta sparar uppsetningarrými og einfaldar yfirsýn yfir kerfi skipsins.
Helstu eiginleikar
-
Mjög bjartur 5,7” litaskjár
-
Fyrir NMEA 2000® netkerfi
-
Sérsníðanlegar skjámyndir
-
Innbyggt viðvörunarkerfi (hljóð og ljós)
-
Rofastýring
-
Vatnsvarið hús – IEC 60945 vottað
DSM410 getur birt gögn um m.a. vélar, rafhlöður, eldsneyti, dýpi, GPS, stefnu, hraða, tanka, hitastig, veður og vind.
Viðvaranir eru forritanlegar og hægt er að deila þeim með öðrum DSM410, DSM570 eða N2KView® kerfum á sama neti.



