ECDIS

Við bjóðum upp á ECDIS frá JRC og Raytheon Anschutz,

ECDIS (Electronic Chart Display and Information System) er sjálfstæður siglingabúnaður sem meðal annars gerir pappírskort óþörf.

Í ECDIS eru lögleg rafræn sjókort sem uppfylla alla nauðsynlega staðla og eru IMO viðurkennd. Kortin er hægt að fá í áskrift þannig að þau uppfærast sjálfkrafa og eru því alltaf eins nákvæm og völ er á.

Margskonar viðvaranir eru í ECDIS. Gert er ráð fyrir því að djúprista skipsins sé skráð inn í búnaðinn. Ef sett er út leið yfir sker eða grynningar sem eru á minna dýpi en djúpristan, gefur ECDIS út viðvörun og heimilar ekki þessa siglingaleið. Einnig gefur ECDIS út viðvörun ef stefnulína gefur til kynna að grynnra vatn sé fyrir stafni. Hérna er því um gríðarlegt öryggistæki að ræða.

Sýnir allar 2 leitarniðurstöður