Actisense NGW-1 NMEA 0183/2000 breytir

NGW-1 er einfaldasta leiðin til að tengja saman eldra NMEA 0183 kerfið og hið nýja NMEA 2000 kerfi sem er smám saman að verða ráðandi í siglingatækjaheiminum.

NGW-1 breytir NMEA 0183 merkjum yfir í NMEA 2000 og öfugt.

NGW-1 er fáanlegt í nokkrum útgáfum.

  • NGW-1 ISO er standard útgáfan með tvíátta breytingu á NMEA 0183/2000.
  • NGW-1-ISO-AIS breytir NMEA 0183 AIS upplýsingum yfir á NMEA 2000 form.
  • NGW-1 USB tengist beint við USB port tölvu fyrir NMEA 2000 merki.

Helstu eiginleikar:

  • Leyfir notkun NMEA 0183 tækja á NMEA 2000 neti
  • Gerir NMEA 0183 tækjum kleift að lesa NMEA 2000 gögn
  • Nýtir NMEA 2000 net til að blanda saman  NMEA 0183 merkjum
  • Stillt með Actisense NMEA reader hugbúnaðinum.
Nánari upplýsingar um Actisense NGW-1 má finna á vefsíðu framleiðenda – hér
Flokkur: Merkimiði: