Actisense W2K-1

W2K-1 Tekur gögn frá NMEA 2000 neti og sendir þráðlaust út á WiFi formi inn á tölvur, síma og önnur tæki sem búin eru WiFi nettengingu.

Öll gögn sem fara í gengum tækið er hægt að skrá á SD kort, og lesa síðar til að greina ferðina.

Helstu eiginleikar:

  • NMEA 2000 í WiFi breytir og leiðarupptökutæki í einu tæki
  • Breytir NMEA 2000 í/úr  NMEA 0183 (sent yfir WiFi)
  • Styður bæði TCP og UDP, og sendir gögn á allt að 3 netþjóna
  • Gagnaform eru stillanleg til að ganga með flestum hugbúnaði
  • 8 GB innbyggt micro SD kort
  • Um það bil 16 daga minni fyrir leiðarupptöku
  • Uppfæranlegur hugbúnaður
  • LED ljós sem sýna virkni NMEA 2000 nets og WiFi
  • IP 67
  • Getur unnið sem Access punktur og tengst öðrum WiFi netum samtímis
  • Lítil straumnotkun
  • 2.4 Ghz tíðni, styður allt að 150 Mbps.
  • Les og sendir út spennu á NMEA 2000 neti
  • Notendaleiðbeiningar innbyggðar, aðgengilegar í netvafra
  • Hefur eigið SSID og lykilorð
Nánari upplýsingar um Actisense W2K-1 má finna á vefsíðu framleiðenda – hér
Flokkur: Merkimiði: