Jotron TronTracker
TronTracker – Nákvæmt baujueftirlit fyrir nútíma sjávarútveg
TronTracker er samþykkt baujuvöktunarkerfi hannað til að fylgjast með veiðarfærum af nákvæmni og öryggi. Kerfið er fullkomlega í samræmi við CEPT-reglur samkvæmt ECC/DEC/(02)01 og starfar sem AMRD-B tæki á 160.900 MHz, sem tryggir áreiðanlega staðsetningu án truflana á siglingakerfi.
Ný kynslóð veiðarfæramerkinga
TronTracker er kjörinn búnaður til að fylgjast með baujum fyrir net, línu, snurvoð. Kerfið er samþykkt sem löglegur valkostur í stað AIS bauja og hentar sérstaklega vel fyrir tímabundins eftirlits.
Snjalltækni fyrir sjálfbæra veiði
-
TA10 Baujusendir– endingargóð, kuldaþolin rafhlaða. Auðvelt er að hlaða hana með BC10 tvöföldu hleðslutæki. Hleðslan er þráðlaus sem kemur í veg fyrir leka og tæringu á hleðslusnertum.
-
RA10 Móttakari – tengist beint við kortakerfi skipsins og sýnir nákvæma staðsetningu veiðarfæra.
-
Samvinna á sjó – TronTracker móttakarar geta einnig lesið merki frá öðrum sendum á sama tíðnisviði, sem dregur úr árekstrum og styður við sjálfbæra nýtingu auðlinda.
Helstu kostir
-
Nákvæm staðsetning – auðveld og skjót endurheimt veiðarfæra
-
Samþykktur valkostur í stað AIS bauja
-
Dregur úr tapi á veiðarfærum
-
Sparar eldsneyti og minnkar kolefnislosun
-
Stuðlar að sjálfbærum fiskveiðum
-
Samhæft helstu kortaplotter-kerfum
Tilbúin pakkalausn
TronTracker pakki
-
1 × RA10 móttakari
-
2 × TA10 sendar með festingum
-
1 × BC10 tvöfalt hleðslutæki
Stakar einingar (seldar sér)
-
RA10 móttakari
-
TA10 sendar með festingu
-
BC10 tvöfalt hleðslutæki
-
Festingapakki (5 stk.)
Sjá nánari upplýsingar á vefsíðu framleiðenda – hér