Kaijo Sonic SCS-88 Sonar

Kaijo Sonic SCS-88 er nýjasta gerð lágtíðnisónartækja frá KAIJO.

SCS-88 er með tölvustjórneiningu sem hefur stafræna merkjavinnslu og mikinn hraða í gagnavinnslu.

Þetta skilar meiri næmni á fisk, minni truflunum, betri aðgreiningarhæfni og auknu langdrægi.

Senditíðnin er 94 kHz sem hentar vel við veiðar á öllum tegundum fisks

Sama sterkbyggða hönnunin og á eldri gerðum, tryggir ending og tryggir lágmarks bilanir.

  • Ný og þróuð truflandeyfingartækni minnkar truflanir frá eigin skipi og öðrum skipum sem skilar hreinni mynd og betri aðgreiningu á fiski.
  • 20 sinnum hraðvirkari veltuleiðrétting og háþróuð truflanadeyfing fjarlægir truflanir og skilar hreinum og skörpum lóðningum.
  • Mjög öflugur sónar, 960 augu í kúlu og 960 rásir í móttakara
  • Gríðarlega þröngur geisli sem gefur afburða virkni á grunnu vatni.
  • Tapar ekki torfum nærri skipi.
  • Áætlar stærð fisktorfa
  • 2 sjálfstæðar lóðréttar sneiðmyndir
  • 2 sjálfstæðar sónarmyndir, með mismunandi stillingum á skala, næmni, truflanadeyfingum og fleiri þáttum.
  • Ferlun á allt að 3 fisktorfum samtímis, (hraði og stefna)
  • Hægt er að vista allt að 10 mismunandi notendastillingar fyrir mismunandi aðstæður og fisktegundir.
  • Einfalt að taka upp og skoða sónarmyndir.
  • Mjög sterkbyggður hífibúnaður með stuðningshring á röri sem styður við kúluna alla leið niður brunninn. Þetta minnkar viðhaldskostnað og eykur líftíma hífibúnaðar og kúlu.
  • Eins og í öllum Kaijo tækjum er stjórntölvan í stál boxi og engir hreyfanlegir hlutir nema kælivifta í iðnaðargæðum
  • Hægt að tengja þráðlausa rottu til þægindaauka við stjórnun sónars.

Sjá bækling um Sonic Kaijo Denki SCS-88 Sonar – hér

Flokkur: Merkimiði: