Kannad Safelink Solo PLB
Lítill neyðarsendir fyrir alþjóðlega Cospas-Sarsat kerfið. Til notkunar bæði á sjó og landi.
Kannad Safelink Solo neyðarsendirinn er mjög lítill og léttur en þó sterkbyggður.
Hann er hannaður til þess að fylgja notandanum hvert sem er og vera tilbúinn til notkunar þegar björgunar er þörf. hann er vatnsþéttur niður á 10 metra dýpi og einfaldur í gangsetningu.
Helstu eiginleikar
- Alþjóðlega viðurkenndur
- Án áskriftar, engin gjöld vegna notkunar
- Lítill, léttur og sterkbyggður
- Vatnsþéttur niður á 10 metra og flýtur þegar hann er í meðfylgjandi flothylki.
- Virkur um allan heim ef hann um COSPAS-SARSAT gerfihnettina
- Alþjóðleg 406 MHz neyðarsending og 121.5 MHz miðunartíðni
- Innbyggður 50 rása GPS sem tryggir nákvæma staðsetningu
- Lágmarks rafhlöðuending 24 tíma í stöðugri sendingu
- Einföld þriggja þrepa ræsing
- Vinnur í allt að 20 stiga frosti
- Kerfisprófun allt að 12 sinnum á ári
- 6 ára líftími rafhlöðu
- Flothylki, burðarpoki og úlnliðsól fylgja með