XJ línan af Inverterum

XJ línan af inverterum frá Xunzel inniheldur fyrirferðarlitla en öfluga invertera sem breyta 12 eða 24 volta DC spennu í hreina sínusbylgju á 230 voltum.

Þeir henta fyrir öll 230 volta rafmagnstæki og eru einstaklega góðir fyrir viðkvæman rafeindabúnað.

Nánari upplýsingar:

  • Breyta rafgeymaspennu í 230 volta spennu með hámarks nýtni
  • USB tengi, 2,1 A
  • Gefur út tvöfalt afl í ræsingu
  • Orkusparnaðarstilling
  • Aðvörun fyrir lága rafgeymaspennu og sjálfvirkt straumrof tækis til að koma í veg fyrir skemmdir á rafgeymum vegna of mikillar afhleðslu
  • Vörn gegn ofhitnun og yfirálags
  • Mjög auðveldur í uppsetningu og notkun
  • Einangrun milli inn og útgangs til að tryggja öryggi
  • Léttbyggður en sterkbyggður, í rafhúðuðu húsi
  • Hentar fyrir allar aðstæður til sjós og lands, mjög hrein útgangsspenna sem hentar vel viðkvæmum raf og tölvubúnaði.

Fæst í eftirfarandi stærðum:

12 V: 400W, 1000W og 2000W
24 V: 500W, 1000W og 2000W

Einnig til með innbyggðu hleðslutæki.

Flokkur: Merkimiði: