
Anschutz NP60 sjálfstýring
Hin fjölhæfa NP60 sjálfstýring býður upp á mikla nákvæmni við að halda stefnu og fylgja leiðum, auk þess að hafa sveigjanleika til þess að uppfylla þarfir notenda.
Frábærir stýriseiginleikar tryggja örugga siglingu við allar aðstæður.
Sjálfvirk aðlögun að skipshraða og ytri aðstæðum sjá til þess að hreyfingar stýris séu í lágmarki og minnka þannig olíueyðslu og slit á stýrisbúnaði.
Eiginleikar:
- Aðlagar sig að hraðabreytingum
- 2 sett af stillingu til mismunandi nota (Sigling/ Veiðar)
- handvirk stjórnun
- NMEA inngangur frá siglingatölvum
- Eiföld í notkun með skýrum skjá
- Viðurkennd fyrir háhraðaskip.

Comnav P4 Sjálfstýring
Ný sjálfstýring sem byggir á áratuga reynslu Comnav á smíði sjálfstýringa fyrir atvinnubáta og skip.
Mjög stór og skýr skjár, flýtihnappar á allar mikilvægustu aðgerðir og nákvæm stýring gerir þessa sjálfstýringu að frábærum kosti fyrir alla sem þurfa að reiða sig á örugga sjálfstýringu.
Helstu eiginleikar:
- IST, Gerfigreindarstjórnun sér til þess að stýringin verði hárnákvæm.
- Sjálfvirk uppsetning og stilling sjálfstýringar
- 5,7” bjartur og skarpur litaskjár sem sést vel á í sól.
- Rauður næturlitur á skjá sem er þægilegur í myrkri
- Forstillingar fyrir mismunandi gerðir báta og skipa
- Sjálfvirk rekleiðrétting
- Hliðarskrúfustýring
- Valmyndir á mörgum tungumálum
- Hægt að hafa margar stjórnstöðvar, inni og úti
- Bæði NMEA 0183 og NMEA 2000 tengingar

Comnav TS4, Follow up fjarstýring fyrir P4
Handhæg og þægileg fjarstýring sem vinnur sem Follow Up stýri (FFU) og getur einnig stjórnað helstu aðgerðum sjálfstýringar.
Vatnsheld og má vera utandyra
Mjög fljótlegt og þægilegt að skipta milli handstýringar og sjálfstýringar.
Skýr og bjartur skjár sýnir vinnsluham, stefnu ofl.

Comnav NF4 - Non Follow up fjarstýring fyrir P4
Handhæg og þægileg fjarstýring sem vinnur sem hefðbundið rafmagnsstýri (NFU) og getur einnig stjórnað helstu aðgerðum sjálfstýringar.
Vatnsheld og má vera utandyra
Mjög fljótlegt og þægilegt að skipta milli handstýringar og sjálfstýringar.
Skýr og bjartur skjár sýnir vinnsluham, stefnu ofl.

Comnav TS-203 FFU útistýri fyrir Comnav Admiral/Commander

Comnav TS-202 útistýri fyrir 1101-1201

Comnav-Bógskrúfutengieining fyrir Sjálfstýringar
CT7 bógskrúfustýringin stjórnar aðgerð bógskrúfunnar sjálfvirkt með boðum frá Compilot sjálfstýringunni.
Hægt er að stilla inn þann hraða sem sem óskað er og aðstoðar bógskrúfan við stýringu bátsins sé hraðinn minni en innstillt gildi. Sé hraðin meiri kemur bógskrúfan ekki inn og truflar því ekki á venjulegri siglingu.
Þeir sem reynt hafa bógskrúfustýringu við vinnu í andófi finnst mikið vanta upp á sjálfstýringar sem ekki hafa þennan möguleika.

Comnav Stýrisvísir
Stýrisvísir með baklýsingu.
Hægt að fella inn eða setja í hús hvort heldur sem er inni í stýrishúsi eða utan dyra. Stærð skífu er 70 mm.
Raymarine Evolution sjálfstýringar
Raymarine Evolution eru vandaðar sjálfstýringar sem henta vel til notkunar í handfærabáta og aðra notkun þar sem ekki er krafist fullkomins útistýris.
Stýriseiginleikarnir eru mjög góðir, jafnvel án GPS kompáss þar sem hún hefur innbyggðan rafeindagírónema í stjórntölvuna.
Einnig vinnur hún mjög vel með Raymarine C og E línu tækjunum og siglir leiðir og í staka punkta sem hægt er að stjórna beint frá þeim tækjum.
Stýringarnar eru í grunninn settar saman úr 4 einingum.
- Stjórntölvu/ kompás
- Stjórnborði
- Mótordrifeiningu
- Stýrisdælu
Þessar einingar eru mismunandi eftir stærð og eiginleikum báta og þarf að velja saman eftir bát og fyrirhugaðri notkun
Raymarine býður upp á fjölbreytt úrval eininga sem hægt er byggja upp kerfi úr sem henta öllum bátum og stýrisbúnaði.
Einnig er oft hægt að fá samsett kerfi með dælu og öllu sem þarf fyrir mjög hagstætt verð.