Raymarine AIS700, AIS tæki með innbyggðum VHF loftnetsdeili

Raymarine AIS er Class B AIS tæki sem er með meira sendiafl og  notar SOTDMA aðferðina til að stjórna sendingum.

Þetta gerir það að verkum að það er langdrægara en eldri Class B AIS tæki og minnkar stórlega líkurnar á að sendingar frá því detti út úr vaktkerfi Vaktstöðvar siglinga.

AIS700 sendir út meira en tvöfalt sterkara merki en standard Class B tæki, auk þess að senda allt að 5 sinnum örar, á SOTDMA sem er sama sendingafyrirkomulag og á Class A tækjum.

Tækið er fyrirferðarlítið og vatnsþétt og hentar því vel við allar aðstæður.

Innbyggður loftnetsdeilir gerir mögulegt að samnýta VHF loftnet með talstöð

Helstu eiginleikar:

  • 5W sendiafl
  • SOTDMA sendingar
  • Vatnsþétt, IP 67
  • NMEA 0183 og NMEA 2000
  • Innbyggður VHF loftnet deilir

Sjá nánari upplýsingar um Raymarine AIS700 á vefsíðu framleiðenda – hér

Flokkur: Merkimiði: