Raymarine Axiom fjölnotaplotter

Mjög öflugt fjölnotatæki, fáanlegt  með innbyggðum dýptarmæli sem sýnir þrívíddarmynd af botni auk fisklóðninga.

Axiom tækið er með hraðvirkum fjögurra kjarna örgjörva, snertiskjá og mjög einföldu og aðgengilegu stýrikerfi með íslensku notendaviðmóti.

Það getur unnið sem þungamiðja í fullkomnu stjórnkerfi báta og hægt að tengja við það fjöldan allan af tækjum sem stjórnað er miðlægt frá því, svo sem radar, sjálfstýringu, AIS tæki, myndavélar, vélbúnað bátsins og hljóðkerfi hans svo eitthvað sé nefnt.

Axiom tækið hefur bæði WiFi og bluetooth tengingu og getur því tengst öllum nýrri snjalltækjum sem býður upp á nær endalausa möguleika.

Hægt er að keyra fjölda smáforrita (APP) á Axiom línunni svo sem Spotify, Netflix ofl. sem eykur enn á notagildi þessara tækja.

Vinnuspenna Axiom er 12 volt og það tengist öðrum tækjum í bátnum með NMEA 2000 netkerfistengingu.

Axiom tækið er fáanlegt í þremur stærðum 7”, 9” og 12”  skjástærð. Tækið er bæði hægt að festa ofan á borð eða fella inn í mælaborð.

Sjá nánari upplýsingar um Raymarine Axiom fjölnotaplotter á vefsíðu framleiðenda – hér

Flokkur: Merkimiðar: , , ,