Seiwa SWx 1200w plotter

Seiwa SWx 1200 plotterinn er fullkominn plotter en þó og afar einfaldur í notkun þökk sé snertiskjáviðmóti og valmyndum á íslensku. Auk þess hefur hann þægilegt takkaborð með tökkum fyrir allar algengustu aðgerðir auk þriggja  forritanlegra takka sem hægt er að nota til að flýta enn fyrir vinnu á plotterinn.

Hann hefur mikla tengimöguleika þar sem hann hefur bæði NMEA 0183 og NMEA 2000 tengi auk bæði WiFi og Bluetooth þráðlausra tenginga.

Hann er fáanlegur með innbyggðum dýptarmæli og hægt að tengja við hann radarskanner.

Þetta er mjög fjölhæfur og skemmtilegur plotter fyrir minni báta.

  • Skjástærð: 12”
  • Snertiskjár með multitouch
  • Takkaborð með baklýsingu
  • Innbyggt GPS/GLONASS
  • Tenging fyrir utanaðkomandi GPS
  • NMEA 2000 og  NMEA 0183
  • Minniskortarauf: MicroSD
  • Þráðlaust net
  • Bluetooth
  • Vatnsþéttni, IPX6
  • Vinnuspenna 10-35 Vdc
Flokkur: Merkimiði: