Jotron Tron AIS-SART
Tron AIS-SART – Öruggur og þrautreyndur AIS neyðarsendir
Tron AIS-SART er AIS neyðarsendir sem hefur hlotið „Wheel Mark“ vottun samkvæmt tilskipun Evrópuráðsins 96/98/EB, ásamt nýjustu breytingum á tilskipun 2011/75/ESB.
Helstu eiginleikar
-
Veitir nákvæma staðsetningu með GPS tækni
-
Uppfærir staðsetningu á einnar mínútu fresti
-
Notar einstaka AIS tækni sem eykur skilvirkni og dregur úr viðbragðstíma í leitar- og björgunaraðgerðum, vegna yfirburða nákvæmni
-
Tækið sést bæði í Class A og B AIS tækjum
-
Mjög léttur og fyrirferðarlítill
-
Notar sömu aukahluti og Tron SART20 (veggfesting, stöng, festing fyrir björgunarbát og hlífðarpoki úr neopreni)
-
5 ára ábyrgð
Sjá nánari upplýsingar á vefsíðu framleiðenda – hér