AG Neovo RX línan af skjám

AG Neovo RX línan er byggð á X línunni sem hefur verið í notkun í íslenskum fiskiskipum  í yfir 20 ár og hefur sannað sig svo um munar.

RX línan eru breiðir skjáir með Full HD upplausn en að öðru leiti mjög áþekkir SX skjáunum sem eru í svokölluð 4:3 sniði sem áður var allsráðandi.

Hús skjánna er að öllu leiti úr málmi og hert öryggisgler framan á þeim. Þeir eru byggðir til að vera í stöðugri notkun 24 tíma á sólarhring, 7 daga vikunnar, ólíkt hefðbundnum skjáum sem ætlaðir eru til skrifstofunotkunar og einungis ætlaðir til 12-16 tíma notkunar í senn.

Þeir hafa öll hefðbundin inngangstengi fyrir tölvuskjái, en að auki sérstök tengi fyrir merki frá öryggismyndavélum sem gerir þá sérstaklega hentuga fyrir notkun í öryggismyndavélakerfum og gerir myndbreyta yfir í hefðbundin tölvuskjátengi óþarfa.

Þetta kemur í veg fyrir tap á myndgæðum í slíkum breytum og minnkar töf á myndmerki sem verður við allar merkjabreytingar.

  RX-22E RX-24E
Skjáeiginleikar    
Gerð baklýsingar LED LED
Skjástærð 21,5″ 23,6″
Hámarksupplausn FHD 1920×1080 FHD 1920×1080
Punktastærð 0,248 mm 0,272 mm
Birta 250 cd/m² 250 cd/m²
Skerpa 20,000,000:1 (DCR) 20,000,000:1 (DCR)
Áhorfshorn 178°/178° 178°/178°
Litafjöldi 16,7 milljón 16,7 milljón
Viðbragðstími 5 ms. 5 ms.
Inngangar    
Display Port x1 x1
HDMI 1.4 x 1 1.4 x 1
DVI 24-Pin DVI-D 24-Pin DVI-D
VGA 15-Pin D-Sub x 1 15-Pin D-Sub x 1
Composite Video BNC x 2 BNC x 2
S-Video 4-Pin mini DIN x 1 4-Pin mini DIN x 1
Útgangar    
Composite video BNC x 2 BNC x 2
Ytri stjórnun    
RS232 In 2.5 mm Phone Jack 2.5 mm Phone Jack
Aðrar tengingar    
USB 2.0 x 1 (Service Port) 2.0 x 1 (Service Port)
Hljóð    
Hljóðtengi inn 3,5 mm. stereo 3,5 mm. stereo
Hljóðtengi út Stereo Audio Jack (RCA) Stereo Audio Jack (RCA)
Hátalarar 2Wx2 2Wx2
Aflþörf    
Spennugjafi Utanáliggjandi 220VAC/12VDC  
Í notkun 16W 17W
Standby < 0,5W < 0,5W
Off < 0,5W < 0,5W
Stærð og þyngd    
Mál með fæti  BxHxD 513.2 x 368.5 x 155.0 mm 562.4 x 396.8 x 155.0 mm 
Mál án fótar 513.2 x 324.3 x 56.2 mm 562.4 x 352.6 x 56.2 mm
Stærð umbúða 615.0 x 483.0 x 210.0 mm 662.0 x 511.0 x 210.0 mm 
Þyngd með fæti 6,8 kg 7,9 kg
Þyngd án fótar 6,2 kg 7,3 kg
Þyngd með umbúðum 8,8 kg 9,9 kg
     

 

Flokkur: Merkimiði: